01september

...............

ÞETTA ER LEIÐINLEGT ÉG ER HÆTT!!!!:)

Þið eruð samt öll falleg......... blessssss
01. september 2006 klukkan 16:13
Sesselja Hlín Rafnsdóttir
2 athugasemdir
23ágúst

Sumarið er tíminn.............

.................þegar mér líður best.........  jammogjájá sumarið er þokkalega tíminn.....en því miður er þetta helmagnaða sumar að enda, og kéllinginn er að fara suður efti viku..úff sem er bæði gleði og sorg!!! en jájá eins og ég segji þá er þetta sumar búið að vera helmagnað og veit ég ei hvernig ég get byrjað á því að lýsa því.

spurning að koma bara með hápunktana.....

-það voru fundnir upp fullt af helmögnuðum partý leikjum og má þar helst nefna :Hver er maðurinn,nei hvað er dýrið, uu nei hver er kötturinn......hehe
-olli hætti við að flytja suður og er nú hamingjusamlega giftur honum kobba sínum, og búa þeir nú saman á sólvöllunum hamingjusamari then ever..
-hótel edda á eiðum hefur ákveðið að opna á ný í vetur, en ekki sem hótel heldur sem geðveikrahæli fyrir fyrrum starfsmenn eddunar...því ekki veitir af.
-sissó mín átti afmæli...og ekki einu sinni heldur tvisvar í ár.
- ég þurfti því miður að kveðja hana tótu mína með sorg í hjarta...(lítið tár)
-það komst í tísku að keyra á varnarlaus lítil dýr.
-stebbi vakti í mér strunsuna sem hefur verið lengi í dvala...og rústaði símanum mínum í leiðinni...takk... hehe (neinei djók það var klárlega ekkert þér að kenna) 
-gummó er verðandi fjölskyldumaður mikill.......enda er ég komin 5 mánuði á leið;)
-ingi hefur hugsað sér að stofna nýja þjónustu á egilss....en hún fer þannig fram að hann dettur alltaf í það á sunnudagskvöldum og mætir svo galvaskur og vel hífaður kl 6 á mánudagsmorgnum með morgunmat í herb. til fólks og vekur það af værum svefni:)...(sem er bara stuð)
- markús og oliver hafa fundið sér ný hýbíli í fallegri lautu uppá fjarðarheiði....og hafa ákveðið að setjast þar að með dýrunum og éta bláber í hvert mál..
-haffi valur hefur fundið sína réttu köllun, sem kælispreyjari....
-keppnin milli mín í og þórörnu um hann philip okkar, er nú í hámarki og fer nú að skerast um það á allra næstu dögum hver hefur vinninginn...spennann er gífurleg....
-Aladín og kóngarnir 7 kemur bráðlega í bíó þar sem unnur fer með aðalhlutverk..
-austfirðingar fóru til eyja á þjóðhátíð, og komu sáu og sigruðu að sjálfsögðu!!.. reyndar án mín, en ég mæti spræk á næsta ári.
-svo má ekki gleyma hróaskeldu sem var tærsnilld...og það verður greinilega farið aftur að ári...og mun noræna þá verða stór partur af því ferðalagi....hammmm Markús!!
-Svo gerðist mín dólgur í sumar..sem var frábær lífsreynsla alveg hreint....(ekkert að þakka reynirinn minn:*)
-það voru haldin fleiri en eitt og fleiri en tvö gufupartý á eiðum...búbbúbbbúbbb.... 
-svo má ekki gleyma hinum helmögnuðu rockstarpartýjum sem voru haldin hvert þriðjud.- og miðvikudagskvöld. Þau voru bara gleði og vil ég þakka öllum meðlimum innilega fyrir frábæra skemmtun þið eruð öll fagmenn!!
-svo héldu haffarnir uppi fjörinu með wilson rokcness böllunum í sumar...algjörir snillingar þar á ferð!!
-og ekki má gleyma borgafirði eystri, sem var klárlega langbesta djamm sumarsins......gamangamangaman....
-það var tekið eitt virkilega gott stelpukvöld á þetta, þar sem ég sissó sigrún og jónína fórum út að borða á nilsen, allar í okkar fínastataui, það var mikið gaman mikið stuð. (en ekki örvænta því ég leyni á öðru góðu stelpukvöldi næsta fimmtudag)
-Svo var auðvita farið á LUNGA en ekki hvað??...þar sem van helen var aðal partýstaðurinn það kveld..vantaði reyndar gummó og haffa snjólf illilega!!! en samt svo gaman
-ég og erla dögg höfum skráð okkur í afvötnun fyrir sunnan og hefst prógrammið um leið og við komum í bæinn
-en hann skúli magg á klárlega vinninginn sem fullasti maður sumarsins, en erla fylgir samt fast á eftir því það var mjög mjótt á mununum
-og svona mætti lengilengi telja..........en nneennnni ekki meir.....

svona var sumarið í grófum dráttum...ein stór gleði frá upphafi til enda...........og munum við endanlega slútta þessu fallega sumri næstu helgi með því að mála bæinn gjörsamlega rauðann....... því það er jú seinasta helgin okkar erlu hér á eglss. í langan tíma þar sem við stöllur erum að fara að gera allt crazy í bænum og ætlumst til að þeir sem eru ekki að koma með okkur komi oftoftoftoftoft í heimsókn!!!!

er að spá í að segja þetta bara gott í kveld og ætlast til að sjá alla á djamminu næstu helgi!!

bbllleeeee 
Sesselja hlín rabbadóttir 

 

23. ágúst 2006 klukkan 06:51
Sesselja Hlín Rafnsdóttir
7 athugasemdir
06júní

Ungmenni VS Gamalmenni

já það er orðin mikil staðreynd að ég sé búin að ganga í nördaklúbbinn.....ég hef nebblilega tekið uppá því að fara stundum út að hjóla á mesta druslu hjóli sem menn hafa augum litið í lengrilengri tíma.....og um daginn var ég að hjóla í sakleysi,þegar ég sé gömlu konuna á tryllitækinu í fjarska....fyrir þá sem vita ekki hver gamal konan á tryllitækinu er, þá er það gömul kona komin örugglega á nítugsaldurinn sem keyrir um götur egilsstaða á svona litlu faratæki,svona tjahh hvernig get ég lýst þessu? svona kannski e-ð mitt á milli gólfkerru og hjólastóls, sem fer svo nötur hægt að þú labbar 10sinnum hraðar en tryllitækið og umferð egilsstaðar sem er nú alls ekki hröð, lamast þegar hún er á ferli(að fylgast með þessari elsku á þessu blessaða tæki er alveg yndislegt!!!) Allavega þá var ég að  hjóla yfir nesið og sé hana á söluskálaplaninu og hugsa með sjálfri mér, það er ekki séns að ég láti þessa elsku vera á undan mér upp Fagradalsbrautina, þannig að ég gef í og tek fram úr henni neðst í brekkunni,....en þegar ég er hálfnuð upp brekkuna og komin með helv. gott forskot á keppinaut minn, mættir mér þessi þvílíki mótvindur(annskotinn hafi það nú) og hjólið fer að þyngjast og þyngjast, ég verð móðari og móðari, og hjólið fer að fara hægar og hægar,....en ég hugsa með sjálfri mér..ég get þetta! ég get unnið gömlu konuna á tryllitækinu, ég get þetta...... og ég var loksins farin að sjá fyrir endann á þessari helv. brekku..þegar ég heyri mér til mikillar skelfingar hljóðið í tryllitækinu færast alltaf nær og nær.....og svo NEIHissa ég trúi ekki að þetta sé að gerast!!!! tryllitækið nær mér og gamlakonan horfir á mig með þetta líka skíta glott og hugsar alveg pottþétt með sjálfri sér: R...Ú....S....T....rúst.....og svo þýtur hún bara framhjá mér eins og ekkert sé eðlilegra og ég sit eftir með sárt ennið og get varla andað því ég er svo búinn á því!.......djöfullinn ég hef verið sigruð af nítíu ára gamalmenni sem ferðast um á hægfarasta tæki sem sögur fara af.......þá skyndilega opna ég augun, stend uppúr rúminu fer í íþróttafötin og beint út að skokka...já þetta var semsagt draumur.....mjög vondur draumur  
og þessi draumur þýðir aðeins eitt skal ég segja ykkur!! Ég er komin í átak og er byrjuð að hreyfa mig, því aldrei vil ég að þessi martröð verði að veruleika!!!!
En ég kveð að sinni ennþá í sjokki.......

BBllleee
Sesselja Hlín
06. júní 2006 klukkan 22:41
Sesselja Hlín Rafnsdóttir
18 athugasemdir
02júní

.........Nágrannar..........

........you can´t live with theme but you can´t live without theme either..............ég er búin að vera að velta því fyrir mér að undanförnu hvar maður setur takmarkið þegar kemur að nágrönnum??.......tjah í mínu tilviki er það ekki alveg ljóst, ég er bara alls ekki viss lengur.
Eins og þið kannski munið, svona flest sem þekkið mig allavega, þá átti ég alveg stórskrítinn nágranna hérna ekki fyrir svo löngu síðan sem ég hef kosið að kalla "Gumma á næstabæ" eða bara einfaldlega "Sæðarann". Hann gerði sig bara heimakominn hjá mér, og æddi inn til mín í tíma og ótíma, til þess að segja leiðinlegar sögur, setjast oná fólk (og þá sérstaklega Antoníu) og vera hreinlega bara stórskrítin, strákgreyið.....eenn sem beturfer flutti strákgreyið í burtu, þannig að ég hélt ég væri hólpin fyrir skrítnum nágrönnum......jáneineinei þvílíkur miskilningur, ég hef núna fengið 2 hómsóknir nýlega frá einum STÓRfurðulegum nágranna.....maðurinn er vel yfir 40 og jafnvel 50ára og býr fyrir ofan mig......en jæja oki einn daginn lá ég alveg berrössuð uppí rúmi(eins og gerist nú og gengur:D), eftir að hafa komið úr sjóðheitu baði og var að kæla mig niður.jæja ég lá þarna í makindum mínum, og heyri allt í einu ókunnuga rödd úr stofunni, þannig að ég er ekki lengi að henda sænginni yfir mig, og rétt svo næ að hylja mig þegar karlinn... skrítni skrítni karlinn labbar inní herbergi eins og ekkert sé eðlilegra og spyr hvort að ég geti ekki skutlað sér í ríkið, vegna þess að hann var að rifbeinsbrjóta sig og langaði að fagna með því að detta bara í það!! hehe!! jæja oki ég segji bara við kauða að það sé lítið mál þar sem ég er kvoreðer að fara yfir í egs., ég þurfti nú bara að fá að klæða mig og svo sé ég alveg til í að skutla honum.
jæja oki svo skutla ég honum í ríkið og aftur heim, sem var lítið mál, og þegar kauði er að fara útúr bílnum kveð ég hann bara kurtegslega og segji honum að láta sér nú batna sem fyrst....og hvað haldiði að hann hafi sagt við mig á móti?!?!?!?!?.......já ég skal segja ykkur það...hann sagði: "Já þú kemur kannski e-ntíman og kyssir bátið"
Þögull sem gröfin....NEI ooooojjjjjjjj....ojj ég fékk ógeðishroll frá tám og uppí heila.....oojjjjÖskrandi
En þetta er nú ekki búið neineineinei það voru 2 heimsóknir jájá.......og hin gerðist nú bara daginn eftir....en ég var nú bara nývöknuð og var að klæða mig inní stofu......þegar þessi stórskemmtileg nágranni æðir bara inn eins og fínn maður...og ég stóð inní stofu þegar hann kom inn, á BRJÓSTARHALDARANUM, reyndar í buxum eeennn samt,....  með opinn kjaftinn af undrun, hugsandi "NEI,er þetta að gerast fyrir mig AFTUR?? hversu ógeðslega óheppin getur ein manneskja verið?"  og hvað haldiði að þessi stór skemmtilegi nágranni hafi sagt við mig??? Hann sagði:varstu að fá nýtt dress!?!?!?! WTF? hehehe jájá sumir eru orðheppnari en aðrir!! oohh ég vildi óska að ég væri að búa þetta til en sú er alls ekki rauninn!!!

Jájá sumir eru meira spes en aðrir þannig er það nú bara!!
En annars er ekki mikið að frétta...var reyndar fyrir sunnan um daginn sem var alveg stórskemmtilegt, náði að hitta flest alla yndisæegu vini mína og svo náttl. fjölskylduna.....þannig að það var bara gleði.....
En held ég segji þetta bara ágætt fyrir svona fyrstu færslu
Blllleeee
Sesselja Hlín

 
02. júní 2006 klukkan 00:59
Sesselja Hlín Rafnsdóttir
6 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Leit

Leikur dagsins